Hérna er ágrip úr lokaverkefninum mínu í sjukraþjálfun. En það
fjallaði um álagseinkenni meðal kraftlyftingafólks og áhrif þeirra á æfingamagn
og frammistöðu.
Kraftlyftingar er keppnisgrein sem á vaxandi vinsældum að fagna
á Íslandi og um heim allan. Þó er lítið til af rannsóknum um meiðsl hjá
kraftlyftingafólki og engar rannsóknir, sem höfundur þekkir til, um tíðni
álagseinkenna meðal kraftlyftingafólks og hvernig þau hafa áhrif á æfingamagn
og frammistöðu þeirra sem stunda kraftlyftingar.
Tilgangur rannsóknar var að meta tíðni álagseinkenna yfir 7 daga
tímabil hjá kraftlyftingafólki á Íslandi og skoða hvaða áhrif það hefði á
æfingamagn og frammistöðu þeirra til að stunda kraftlyftingar ásamt
verkjaupplifun.
Þátttakendur í rannsókn voru kraftlyftingafólk innan
Kraftlyftingasambands Íslands og voru 32 þeirra notaðir við úrvinnslu gagna.
Allir þátttakendur svöruðu sama spurningalistanum sem innihélt þrjá hluta
(almennan hluta, æfingarálag og álagseinkenni) og var þriðja hlutanum skipt
niður fyrir hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Í hnébeygju var spurt um
álagseinkenni í öxl, mjóbaki og hné. Í bekkpressu var spurt um álagseinkenni í
úlnlið, öxl og mjóbaki og í réttstöðulyftu var spurt út í álagseinkenni í öxl,
mjóbaki og hné. Fyrir hvert svæði voru 4 spurningar þar sem þátttakendur áttu
að meta álagseinkenni sín, hve mikil áhrif þeir töldu þau hafa á æfingamagn,
frammistöðu og hve mikla verki þátttakendur upplifðu við framkvæmd á lyftunum
þremur.
Helstu niðurstöður voru þær að nokkuð er um álagseinkenni meðal
kraftlyftingafólks og voru þau mest áberandi í hnjám við framkvæmd á hnébeygju
(38%), öxl við framkvæmd á bekkpressu (47%) og í mjóbaki við framkvæmd á
réttstöðulyftu (34%).
Ályktunin er að spurningalistinn sem notaður var gefur
vísbendingu um að nokkuð sé um álagseinkenni meðal kraftlyftingafólks á Íslandi
og að þau álagseinkenni sem eru til staðar höfðu töluverð áhrif á þátttakendur
rannsóknarinnar.
Ávinningur rannsóknarinnar er að hún gefur vísbendingu um að það
þarf að huga betur að þætti álagseinkenna við þjálfun í kraftlyftingum þar sem
þau hafa áhrif á æfingamagn og frammistöðu hjá kraftlyftingafólki.
Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að nálgast verkefnið í heild
sinni inni á skemman.is eða á
slóðinni http://skemman.is/item/view/1946/15196;jsessionid=BA50D26917802DAD8287E9D432ACEF15.
Helgi Pálsson
Sjúkraþjálfari
No comments:
Post a Comment